Loka ritningarvers péturs postula
Vá ég fyllist þakklæti og sóma þegar ég athuga bæði heimsóknir og komment seinasta mánuðinn.. Skil ekkert í því afhverju ég er ekki löngu síða orðin moggabloggari og með fastan pistil á forsíðu fréttablaðsins! Svo mikill hefur heimsóknar fjöldinn verið seinustu vikur og daga.... Klárlega ekki nærri sannleikanum. En hver veit það ekki ? Takk Þóra. Þú hefur haldið fjöldanum í þremur heimsóknum á viku. Þúsund þakkir!Ég er komin með síma! Og það með tökkum! Hversu lengi hann mun haldast á lífi veit ég ekki. Men jeg kommer til med ad keep u posted.
Timinn líður og hrukkurnar myndast. Trúi því tæplega að árið 2009 sé að liða.. 9undi feb í dag.
Held að þetta árið verði "ár sundsins" Ólöf sundgarpur fór í sund í gær. Í fyrsta skipti síðan ég stóðst sundprófið mitt með prýði í 10. bekk. Ástin í lífi mínu hann Biggi töfrakroppur fékk mig til að striplast fyrir framan fjölda fólks á sundfötunum einum fata. Ég var meira segja but naked fyrir framan fjöldan allan af kvenfólki í búnigsklefanum. Get ekki sagt að þetta hafi farið hrakfallalaust fyrir sig. Skáparnir voru eitthvað að stríða mér og sturtan var fokking hell! Hefði allt eins getað verið að baða mig í polli! En svo virðist vera að sundofnæmið mitt sé að lognast útaf og ég er öll að koma til.
Annars er þetta allt við það sama. Ég sé aldrei neitt. Geri aldrei neitt og veit ekki neitt og held gjörsamlega kjafti! .... Ég er skíthæll af bestu gerð, sem er svo sem ekki neitt nýtt.
Amen
Sá sem laugast hefir,
þarf ekki að þvost, heldur er hann allur hreinn.
Nýárspistill.. skrifaður í mikilli örvæntingu um smá upplyftinu frá veikindum seinustu daga;)
Það er svo gott sem rúmur mánuður síðan ég skrifaði pistil hérna seinast! Alltaf læt ég ástkært fósturbloggið standa á hakanum.Á rúmum mánuði hefur allt gerst! Jólin liðin og nýtt og betra ár (vonandi) gengið í garð! Mér finnst frekar spes að skrifa nýjársblogg svona þegar langt er liðið á árið! En ég hef líka alltaf verið frekar sein í flestu. Ég er frekar sein ef að þú skilur hvað ég á við??
Ég man áramótin mín seinustu 2007-2008. Fokk ég var aðeins og full. Átti stefnumót við postulinið. Það gerði ég reyndar ekki þessi árskipti. Prik fyrir mér! Ég vaknaði með nagandi kvíða og skaust til Reykjavíkur. Daginn eftir flaug ég til dk. Ég byrjaði á því að enda í sleik á lestarstöðinni og var rænd. (Nærri sannleikanum) Svo dröslaðist ég með töskurnar mínar í skitakulda eftir hundleiðinlegt flug á milli einhverra manna. Skítþreytt og þakkaði guði fyrir að það væri nú helgarfrí og ég þyrfti ekki að fara að passa strax. Það kingir niður snjó og ég svo löt að sat sem fastast úti og reykti mig í hel því ég nennti ekki að bíða inni. Svo kem ég til næstved.! Nei fólkið var að koma fra USA og húsið ískallt og allir veikir! Ég passaði og eldaði og hjúkraði bæði daga og nætur þá helgina. Vakna svo á mánudeginum, ríf mig á fætur og ætla að vera hress ! Ég var ekki svo hress. Fór til læknis sem úskyrði fyrir mér að ég væri með naumindum á lífi og lá í rúminu í gott sem eina og hálfa viku með lungnabólgu! Sem betur var þetta eini leiðinlegi tíminn á árinu 2008! Besta ár mitt hingað til. Ætla að láta þetta verða enn betra.
Árið 2008 einkenndist af flottu líferni, kæruleysi, skattasvikum, sektum við hinu og þessu. Þó mest megnis vegna ofur aksturs (danir fíluðu ekki löggu hjólið mitt). Hlárti og skemmtilegu fólki. Mér tókst líka að týna af mér alveg merkilegustu hlutum. Síma sem kosaði hálfa hendina á mér, hjólinu sem ann og einar áttu viku áður en ég flutti heim á frón og úlpunni minni sem kostaði hina hendina.
Eitthvað sem ég mun minnast ársins 2008 .. Dauðir fiskar, hvítvin, stepps, crazy dazy, IN, hjóla helvíti, barna sull. Þunnir sunnudagar í lokuðu herberginu minu. TEQIULA! ''maría það eru tvo tequila á gólfinu'' Mörg óvænnt fimmtudagskvöld!
En árið 2009 mun einkennast af aðeins minna kæruleysi, flottara líferni og færri sektum og ég reyni hvað ég get að halda mér frá skattafangelsinu.
Megi árið 2009 vera það besta hingað til!
Andlát drossirunnar! Og vakning jólanna!
Já það er lukkan. já það er lukkan! Það er þrettándi dagur mánaðarins og þetta er ólukkans dagur!Bíllinn minn er dauurr! Og ég braut af honum hurðina?? Hvernig veit ég ekki og sú spurning liggur enn í búnkanum yfir allt það sem ég veit ekki! En kannski, hver veit,.. hefur ginsen góð áhrif á mig! Ég beit í kinnina og vörina á mér þrisvar í dag! Allt er þegar þrennt. En full reynt í fjóða.
Lítið að frétta. Jólin berja á dyrnar hjá mér eins og flestum landsmönnum. Ég er næstum búin með öll jólainnkaup! Sem mér finnst þrosamerki! Því ég veit ekki hversu langt er síðan ég hef tekið þetta svona alvarlega! Oftast nær hef ég ekki gefið jólagjafir því mér finnst þetta óþarfa bruðl. En ég er eitthvað að breytast og bara alveg að spila út!
.... en annars allt við það sama og ég veit ekkert, sé ekkert, geri ekkert og vil ekkert! Ég er gott sem dauður fiskur.
ps. Ég fékk ekki góðar viðtökur vegna lokaðs bloggs. Svo ég hér með opna ég það aftur fyrir almenningi! Þakka Þóru kærlega fyrir að fylgjast með blogginu í þá daga sem það var læst! Takk fyrir tryggðina! Þú ert traustur aðdáandi!
Annars bara skál!
Olla bolla bólufeis!
Og ekki má gleyma! Í nótt er ég kom heim um kl 5 þá lá litla systir Steinka dauð áfengisdauða í sófanum eftir eldhúspatry með einum með tóma flösku í fanginu! á ég við vandamál að stríða?
Sama klausan endalaust
Finn mig alveg skilduga til að gera smá skil á líferni mínu! Ég hugsa um ástkært bloggið mitt á hverjum degi en fæ mig aldrei til að koma ritningar! Ég vil meina að andinn hafi legið í dái og gruna hann um að ligga eflaust bara á botni sjávar ! Liggur í valnum blessaður andinn. Elski lesandi þú verður að fyrirgefa ef að mikið sé um stafsetningar villur því að ég sit svona uþb þrjá metra frá sjónvarpinu og stafirnir eru tæní væní.! Þetta er svo tæknilegt hjá Árna en honum hefur yfirsést það að ómögulegt sé að blogga í blindni! Eða þá að sjónin sé að svíkja mig og ellin sé farin að hellast yfir mig. Tel það samt ólíklegt því að unglingabólurnar eru að hrella mig og ég þori vart út á meðal fólks! Það er hreinasta kvöl og pína að þurfa að mæta í vinnuna því að ég er með fokking mikla LJÓTU, hef ekki verið svona ljót lengi þó ég segi sjálf frá! Og til að bæta gráu ofan á svart (sem gerir nátturulega ekkert gagn) þá er ég með fituna líka! Sem sagt alveg ómöguleg! Enda ekki vel húsvanin!Um daginn þá var ég að klippa á mér táneglurnar og setti klippið ofaní óhreint glas á stofuborðinu því ég þoli ekki táneglur um allt gólf! Svo ætlaði ég að henda klippinu og bara setja glasið í húsmóðurina á heimilnu! En gerði það ekki! Það vildi ekki betur til en að þetta var glasið hans Árna og hann fékk sér pepsí og svo er framhaldið alveg ljóst! Ég sá fyrir mér líftóruna mína fara yfir móðuna miklu en svo bara hægri U og beinustu leið til vítis! Sem betur fer erfir hann þetta ekki mikið við mig! En lítur gaumgæfilega í öll glös áður en hann fær sér sopa!
Ég var að koma úr heitum potti og alveg endurnærð! Fékk vel útbúna drykki ala Hafdís! Var samt að drepast úr verkijum í öxlunum og hélt að þetta myndi bæta eittthvað en er bara ansi stíf! Ætla að fara í nudd fyrir jólin!
Annars allt gott að frétta af brúininni og við Steinka lifum í sátt og samlindi nánast alltaf! Nema þegar við kítum um það hvort okkar sé rollan og hver sé gimbur! Fundum svo uppá allskonar nöfnum á búfénaði í kveld þegar við vorum að þræta! Ég kallaði hana rollu, hún mig gimbur, ég hana búfénað, hún mig hrút, ég hana jarmara, og hún mig gæru og svona héldum við áfram! Fjör hjá sveita stelpunum!
Þetta er næstum allt! Ég veit ekkert, geri ekkert sé ekkert né heyri!
..... tóm tunna
Stórborgar bragur á manni alltaf. Svo settist að í mér sórmennskubrjálæði og bloggið lendir á hakanum eins og venjulega!SKYLDIBITI hefur tekið öll völd í lífi mínu og ég átta mig ekki á því hversu sver ég er orðin. Ég á aldrei eftir að gifta mig. Sem ég tel mikinn og stóran MÍNUS! En aftur á móti alveg ljómandi fyrir hitt kynið því að ég er farin að strauja viskastykki og borðtuskur! Vona að ég eigi eftir að láta sokkana hans Árna í friði!
Það gengur bara vel í Lágmúlanum. Ég get ekki sagt að ég sé komin í uppáhald ennþá en er að vinna mig uppí metorðastiganum. Það er einungis einn maður næstum búin að ráðast á mig en það var bara vegna þess að honum leist svo vel á mig.
Þóra er samt hérna við hliðina á mér. Og hún þarfnast svo mikillar athygli að ég get ekki bloggað.
.jpg)
.... Nú stend ég á gati, en ekkert af þessu er í plati
Nú er því sko öllu lokið.. Og það eina sem sannar það er að ég er háalvarlega mikið kvefuð með eimsli í hálsi og alveg hundleiðinlegan hósta... ROLLUHÓSTA... Ég er svoddan rolla. Búfénaður. Þetta er það sem sannar það fyrir mér að sumarið er á enda. Punktur og basta. Fyrir utan óveðrið. Fólk á vestfjörðum næstum bara orðið sér á báti. Ég ætti pretty much að vera farin að sofa í hausinn á mér. En ég er bara svo hrædd um að ég geti ekki andað ef að ég sofna. Ég er svo stifluð, ég nátturulega sem með lokaðan munn og anda aðeins með nefinu þegar ég er sofandi. Ég er svo dönnuð. Ég er rosalega sjálfhverf í blogginu í nótt.. ekkert nema ... ég ég ég... Ég er byrjuð að vinna á sjoppen. Eftir Apó kemur sjoppen... þannig er líf mitt þessa dagana. Apó að afgreiða sjúklinga með of hátt kólesterol og fleiri kvilla. Á kveldin sé ég um að afgreiða sömu einstaklinga um óætar pylsur með extra remó. Þetta er nátturulega eini kúnna hópurinn. Það eru ekki svo margir sem búa hérna. Fæ oft að heyra ''bíddu varstu ekki að afgreiða mig í apó áðan?'' ég er eflaust ógeðslega pirrandi.
Ég ætlaði samt að koma með myndablogg. Svona í tilefni þess að sumrinu er lokið til fulls hjá mér ætlaði ég að koma með smá ljósmyndabrot frá liðnum atburðum. En tæknin er eitthvað að stríða mér eins og svo oft áður gat ég ekki komist inná myspace og stolið myndum frá félögum mínum í sumar. Og vegna þess að ég á ekki lengur myndavél þá á ég ekki neinar myndir sjálf. Ætti kannski að minnast líka á það að ég á ekki heldur síma. Er samt með lánssíma en held að hann virki ekki. Því mér leikur forvitni á að vita hversvegna það er ekki neitt rosalega mikill erill þar á bæ. Sjaldséður er fiskur á flugi. Rétt eins og simtölin mín. Það eina sem ég fæ eru sms frá björgunarsveitinni Landsbjörg. Þá er hún yfirleitt að láta mig vita af fundum hjá björgunarsveitinni blakki. Ég er náttúrulega mikilsmetinn félagi þar.
Kem sko með dúndur blogg næste gang
góða nótt kv, Ólöf gleðikona
Úlfur í sauðargæru og lamb í holu... þó ekki sú sama og í bakgarðinum mínum!
Ég hef bara ekki undan því að vera endalaust að blogga. Ég stend mig vel í þessu og ætti Þóra krúttibolla að vera sem hæstánægðust með þetta þrekvirki mitt! Heillin endalaust að kvarta undan bloggleysi í Nætugalanum Ollu bollu. Ég verð með sanni að segjast vera orðin ansi langorð og margorð í blogginu. Blogg á eftir öðru bloggi.Geinilegt að ég hef tekið mig á!
Ég er byrjuð að grafa mér holu í bakgarðinum. 2 *2 .. Ætti að duga mér. Þarf bara að útvega mér einhvern til að grafa yfir mig þegar ég hef komið mér huggulega þar fyrir. Fæ kannski maðkaveiðarana úr næsta húsi til að gera það? Þeir skulda mér enn eftir að hafa fengið að sjá mig á nærbrókunum. Helvískir halda þó ekki að ég hafi ætlað að gleðja þá gjaldlaust? .. nei nei... þá hittir sko skrattinn ömmu sína í fyrsta skipti.
Móðurhlutverkinu fer senn að ljúka! Jaa... einungis vegna þess að ég er búin að eignast FRÆNKU! Get ekki sagt hana litla því hún var hvorki meira né minna en 55 cm 18.5 merkur. Og hana nú! Ekker hálfkák hjá systur minni! Hún líkist bara hnetti. Efast um að hún þurfi að læra að ganga því hún veltur eflaust bara um allt! Algjör glókollur og líkist pabba sínum helst til of mikið! Ég læt mig dreyma um að hún verði nefnd í höfuðið á mér "hvað á telpan að heita" "Hún á að heita Ólöf" .. Nei þetta var einnig líka hugsun mín þegar Guðlín María fæddist. Mér finnst samt Guðlín María miklu betra en Ólöf. Ætli ég verði bara ekki að eta það súra, og bíða eftir að ömmu börnin mín átti sig á því hversu afskaplega hipp and cool nafnið Ólöf verður árið 2052 eða eitthvað? Bíst sterklega við því lesandi góður. En hvað sem því líður er ég afskaplega stolt frænka og hlakka til að fá þær mæðgur heim.
Á mánudaginn uppgvötaði ég einkennilega tilfinningu. Ég vakti Þórð Helga kl 7 til þess að mæta fyrsta skóladaginn sinn í 3ja bekk. Við borðuðum morgunmat saman í rólegheitum og spjölluðum aðeins um sumarfríið og svo smurði ég nesti fyrir hann, hann knústi bæði litla bróðir og hundinn og svo gekk hann sína leið og ég með tárin í augunum og horfði á eftir honum arka af stað. Þegar ég hugsa til baka þá finn ég enn fyrir stolti.. Hann er að verða svo fullorðinn! Þann sama dag náði ég í Guðmund Inga í leikskólann eftir vinnu. Stelpurnar niðrá Arakletti þakka Gumma fyrir daginn og hann segir " takk sömuleiðis" . Ég er búin að vera að reyna að fá hann til að segja þetta í næstum þrjár vikur og svo kom ÞAÐ!
Guð ég er að átta mig á þvi að ég gleymdi að drekka kaffið mitt sem Petrína helti uppá fyrir mig í kaffiboði áðan! Ég var stokkin út áður en ég náði svo mikið sem að sjá kaffið! Guð hvurslags dóni get ég verið?
Það var nefnilega smá upphitun áðan fyrir sælkerakveldið áðan. Við Hulda skelltum okkur í kaffi og heitan brauðrétt til Petrínu. Símon kæróinn hennar múttu passaði fyrir mig. En það sem kom útur þessu boði var að ÉG ákvað að ég ætla að skarta mínu fegursta á sælkeranum og fara í kjól... Fagurgali eins og ég læt mér ekki detta annað í hug...! Guð hvernig á það eftir að fara! Ég er ekki þessi kjólamanneskja.
En Næturgalinn og fagurgalinn ætlar að grafa örlítið meira í bakgarðinum og skella sér svo í rúmið.
Hver veit nema ég lumi á bloggi fljótlega.. Eins og Védís mín segir þá fer einmannaleikinn vel með bloggið mans en ég veit ekki hvort hann fari eins vel með sálartetrið... því ég hef verið alveg óþolandi í apó og verið með þvílíka skrípalætin!
gúdden natten!